Hósti er eðlilegt viðbragð líkamans til að hreinsa öndunarveginn, bæði af slími og aðskotahlutum sem við höfum andað að okkur. Það er því eðlilegt að hósta annað slagið, en stundum getur hósti verið einkenni um sjúkdóm.
Stundum er talað um blautan hósta, þegar slím kemur upp með hóstanum og þurran hósta sem er án slíms.
Helstu ástæður hósta
- Sýking í öndunarvegi, eins og t.d. kvef eða berkjubólga.
- Slím sem lekur úr nefholi niður öndunarveg, getur gerst við kvef, ofnæmi eða ef sýking er í kinnholum.
- Sjúkdómar í lungum eins og astmi og langvinn lungnateppa.
- Bakflæði, en þá lekur magasýran upp í vélindað.
- Aukaverkun af blóðþrýstingslyfi sem nefnist ACE-blokkari.
- Reykingar, leiðbeiningar um að hætta að reykja.
Hvað get ég gert?
- Drekka 6-8 glös af vatni á dag
- Hækka undir höfðalaginu á nóttinni
- Heitir drykkir geta hjálpað
- Forðastu áreiti eins og reykingar og sterk lyktarefni
- Að fara út í kalt loft getur hjálpað
- Hóstamixtúrur er hægt að kaupa í apóteki og geta þær stundum hjálpað
- Slímlosandi freyðitöflur hjálpa til að leysa upp þykkt sím
Hvenær skal leita aðstoðar?
Leitaðu til heilsugæslunnar á næsta sólarhring ef:
- Barn er með geltandi, þurran hósta
- Hiti (>38°C) í yfir þrjá sólarhringa og engin batamerki
- Hóstinn er svo slæmur að uppköst koma í kjölfarið
- Uppgangur á grænu, gulu eða brúnu slími í yfir þrjá sólarhringa
- Þrálátur hósti í meira en 3 vikur
Leitaðu strax á bráðamóttöku ef hóstanum fylgja eftirfarandi einkenni:
- Barn sem er yngra en 6 mánaða með hraða öndun og hósta
- Barn er mjög slappt að sjá
- Bláar varir
- Blóðugur uppgangur með hóstanum
- Erfiðleikar við að anda, eða hvæs hljóð við öndun