Fara á efnissvæði

Hiti hjá börnum

Kaflar
Útgáfudagur

Almennt er talað um að börn séu komin með hita ef líkamshiti þeirra fer yfir 38°C. Börn fá oft hita og oftast gengur hann yfir á nokkrum dögum. Barn með hita er oft heitt viðkomu (heitara en venjulega á bringu og baki), sveitt og órólegt og getur fengið hitakrampa.

Helstu ástæður hita hjá börnum?

Algengustu ástæður fyrir hita hjá börnum eru:

  • Kvef
  • Aðrar sýkingar í öndunarfærum
  • Magapest

Börn geta líka fengið hita eftir bólusetningu.

Hvernig mæli ég hita hjá barninu mínu?

Best er að mæla hita í endaþarmi eða munni (ef barnið er 4ra ára eða eldra). Það er líka hægt að mæla hita á enni, í eyra eða í handarkrika en þær mælingar eru ekki eins nákvæmar.

Hvað get ég gert?

  • Fylgist með hitanum á 2-4 tíma fresti.
  • Haldið vökva að barninu. Börn eru oft lystarlaus þegar þau eru með hita. Leggið því meiri áherslu á að barnið drekki heldur en borði.
  • Skapið rólegt og notalegt umhverfi fyrir barnið og leyfið því að hvílast þegar það vill, án þess þó að þvinga það til að hvílast.
  • Hafið barnið í léttum og þægilegum fatnaði og notið lak í stað sængur.
  • Gefa hitalækkandi lyf á 4-6 tíma fresti ef barninu líður illa. Til dæmis paracet eða panodil junior eftir aldri og þyngd barnsins. Skammtastærð miðast við þyngd barnsins og er 10-15 mg paracetamol á hvert kg líkamsþyngdar í senn, 1-4 sinnum á dag. Hiti er eðlilegt varnarviðbragð líkamans og því er óþarfi að gefa hitalækkandi lyf ef barninu líður ekki illa með hitanum það nærist og drekkur vel.  
Parasetamól

Parasetamól fyrir börn er til á tveimur lyfjaformum. Stílar og mixtúra.

Stílarnir eru í pakkningum sem eru 60 mg, 125 mg og 250 mg. Ekki er ætlast til að stílarnir séu hlutaðir niður. Eingöngu á að gefa heila stíla. 

Þyngd barns     Skammtur

Upp að 7kg       60 mg
8 til 11 kg         125 mg
12 til 15 kg       125+60 mg (tveir stílar)
16 til 20 kg        250 mg
21 til 24 kg        250+60 mg (tveir stílar)

Mixtúra sem er í styrknum 24mg/ml.

Þyngd barns   Skammtur

5 kg ---------- 2,5 ml
6 kg ---------- 3,75 ml
7 kg ---------- 4,3 ml
8 kg ---------- 5 ml
9 kg ---------- 5,6 ml
10 kg --------- 6,25 ml

11 kg --------- 6,8 ml
12 kg --------- 7,5 ml
13 kg ---------- 8,1 ml
14 kg ---------- 8,75 ml
15 kg ---------- 9,3 ml
16 kg ---------- 10 ml

Lyfið Dolorin inniheldur einnig parasetamól en er ekki gefið í sömu skömmtum og panodil og paratabs. Fylgja skal fylgiseðli varðandi skammtastærðir. 

Fylgiseðla lyfja má finna á sérlyfjaskrá.

Íbúprófen

Íbuprófen mixtúra er til í mismunandi styrkleikum, oft er mixtúran í styrknum 40 mg/ml. Alltaf ætti að nota paracetamol sem fyrsta lyf til að lækka hita en ef hiti er hár og paracetamol dugar ekki má bæta íbúprófíni við.  

Áður en íbúprófin er gefið ætti að hafa í huga að þetta lyf er ekki fyrir alla og ætti fólk að lesa vel fylgiseðil áður en lyfið er gefið. Barn þarf að hafa  náð 7 kg þyngd til að mælt sé með að gefa íbúprófín. Fylgiseðla lyfja má finna á sérlyfjaskrá.

Skammta skal gefa á u.þ.b. 6 til 8 klst. fresti 1-3 sinnum á dag.

Þyngd barns   Skammtur

7 til 9 kg ----- 1,25 ml
10 til 15 kg ---- 2,5 ml
16 til 19 kg ---- 3,75 ml
20 til 29 kg ---- 5 ml
30 til 40 kg ----- 7,5 ml

Hvenær skal leita aðstoðar?

Leitaðu til heilsugæslunnar ef:

  • Hiti hefur varað í 3 sólarhringa og engin önnur einkenni til staðar
  • Barn er með útbrot
  • Barni finnst sárt að pissa
  • Barn er með langvinnan sjúkdóm, s.s. sykursýki, flogaveiki
  • Blæðing, útferð eða verkir í leggöngum
  • Ef hiti lækkar ekki við hitalækkandi lyf (miða skal skammtastærð við þyngd)
  • Ef hitasveiflur eru miklar þrátt fyrir reglulega notkun hitalækkandi lyfja á 4 til 6 tíma fresti
  • Grænt hor/slím hefur verið samhliða hitanum í yfir 3 sólarhringa
  • Niðurgangur er í meira en viku
  • Uppköst eru í meira en 2 sólarhringa
  • Verkir eru í maga
  • Verkur í eyrum, eða hálsi

Finna næstu heilsugæslustöð.

Leita til bráðamóttöku ef:

  • Barn á erfitt með andardrátt
  • Hiti er yfir 38°C hjá börnum yngri en 3 mánaða
  • Barnið virðist mjög veikt, mjög slappt eða mjög pirrað
  • Húð eða varir eru bláleitar
  • Getur ekki kyngt, slefar mikið
  • Grunur er um ofþornun
  • Fjólubláir eða blóðlitaðir litlir punktar eða doppur á húð barnsins
  • Mikill höfuðverkur eða mikill magaverkur
  • Krampar
  • Útbrot, rauð tunga og stækkaðir eitlar á hálsi

Finna næstu bráðamóttöku.