Bjúgur (e. edema) myndast þegar vökvasöfnun verður í vefjum líkamans. Oftast sést bjúgur á rist eða ökkla en hann getur einnig komið fram í öðrum líkamshlutum eins og á kvið, höndum og í andliti. Bjúgur getur takmarkað hreyfingar í útlimum og valdið óþægindum. Ef bjúgur er viðvarandi er ráðlagt að leita læknis.
Einkenni
- Bólginn ökkli eða fótleggur
- Húð yfir bólgu er glansandi, teygð og mögulega rauðleit
- Ef þrýst er með fingri á bólgið svæði myndast dæld í húðinni
- Far myndast eftir tímabundinn þrýsting t.d. eftir stroff á sokkum
- Verkir í fótum
- Þreyta í fótum
- Kláði yfir bólgustað
- Þyngdaraukning á skömmum tíma
- Mæði
Orsakir
Bjúgur getur myndast af mörgum ástæðum. Dæmi um orsakir:
Saltrík fæða getur valdið bjúg á fótum sérstaklega ef ekki er drukkið nægjanlegt vatn
Kyrrseta og langar stöður. Að vera á hreyfingu hjálpar til.
Meðganga er álag fyrir líkamann og bjúgur einn þeirra meðgöngukvilla sem geta fylgt
Áverkar til dæmis tognun á fæti
Umbúðir eins og gifs, teygjubindi, þröngir sokkar eða þröngir skór geta valdið bjúg
Skordýrabit bólgna gjarnan upp og geta valdið bjúg
Löngum bíl- og flugferðum fylgir oft mikil kyrrseta því er gott að standa upp reglulega og gera fótaæfingar til að minnka bjúgsöfnun. Ráð til að draga úr líkum á blóðtappa og bjúgmyndun á löngum ferðalögum
Aukaverkun lyfja. Hafir þú grun um að svo geti verið er gott að lesa um aukaverkanir þeirra lyfja sem þú notar. Á sérlyfjaskrá má finna fylgiseðla lyfja.
Hjartabilun fylgir oftast bjúgur
Hjartaþelsbólga lýsir sér meðal annars með bjúgmyndun í líkamanum
Hvað get ég gert?
Það er ýmislegt hægt að gera til að koma í veg fyrir vökvasöfnun til dæmis:
- Regluleg hreyfing til að auka blóðflæði í fótum
- Fótaæfingar þegar setið er, kreppa tær og teygja úr sér við hvert tækifæri
- Hafa hátt undir fótum í hvíld, nota skemil eða kodda undir fætur
- Forðast kyrrstöðu með hangandi fætur
- Forðast heit böð
- Forðast langar stöður því þá hækkar þrýstingur er veldur bjúg í fótleggjum
- Nota stuðningssokka á daginn
- Nota stuðningssokka (flugsokka) í lengri bíl- og flugferðum: standa reglulega upp og ganga um
- Huga að mataræði og takmarka neyslu á salti
Hvenær skal leita aðstoðar?
Leitaðu strax á næstu bráðamóttöku ef:
- Skyndilega kemur mikill bjúgur á fætur
- Erfiðleikar eru við öndun
- Aukin mæði
- Verkur fyrir brjósti, þrýstingur eða þyngsl yfir brjóstkassa
Ráðlagt er að leita heilsugæsluna ef:
- Bjúgur lagast ekki við það hækka undir fótum, ganga um eða minnka setu
- Bjúgur eykst á fótum
- Bjúgur er á öðrum fæti með verk sem ekki tengist áverka
- Skyndilegur hiti eða roði myndast á fótlegg