Hollara val
Hollara val er ætlað til að auðvelda fólki að velja hollari kostinn. Á vefnum má fá upplýsingar um viðbættan sykur, koffínmagn, saltmagn, sætuefni og mettaða fitu í ýmsum vörum og bera sama ólíkar vörur. Þar sem oftast er aðeins gefið upp heildarmagn sykurs á umbúðum, getur verið erfitt að átta sig á magni viðbætts sykurs.
Hvað er viðbættur sykur?
Sykur er náttúrulega til staðar í sumum matvælum. Talað er um viðbættan sykur þegar sykri er bætt í matvörur við framleiðslu.
Skoða nánar
Hvað er koffín?
Koffín er örvandi efni sem finnst í ýmsum matvörum. Það getur verið náttúrulega til staðar eins og í kaffi og tei eða því er bætt út í drykki eins og orkudrykki.
Skoða nánar