Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Verkir

Kaflar
Útgáfudagur

Segja má að verkir séu viðvörun þegar upp kemur ógn um raunverulega eða hugsanlega vefjaskemmd.

Gott dæmi um þetta er þegar við snertum heitan flöt með hendi. Húðin skynjar það sem hættu á bruna og sendir skilaboð til heilans, sem aftur sendir skilaboð til handarinnar um að kippa henni burt frá hitanum. Þetta viðvörunarkerfi líkamans kemur í veg fyrir alvarlegar vefjaskemmdir.

Verkir hafa því þann mikilvæga tilgang að vernda okkur. Sumir verkir eru þess eðlis að hafa ekki þennan verndandi tilgang. Þá tölum við um langvinna verki.

Nánari umfjöllun um bakverk, brjóstverk, höfuðverk, kviðverk og langvinna verki og verk í rófubeini

Hvað get ég gert?

Þegar orsök er óþekkt - mat á verkjum

Nokkur atriði sem geta verið hjálpleg til að meta alvarleika verkja:

  • Átta sig staðsetningu verks. Er verkur dreifður eða staðbundinn?
  • Er verkur stöðugur?
  • Er verkur versnandi eða dvínandi?
  • Hvað gerir verk betri?
  • Hvað gerir verk verri?
  • Hvenær kom verkur fram og hversu lengi hefur verkur verið til staðar?
  • Meta styrk verkjarins. Sem dæmi á skalanum 0 til 10, þar sem 0 er enginn verkur en 10 er mesti mögulegi verkur.
  • Önnur einkenni sem fylgja, eins og hiti, ógleði, mæði eða svimi?

Þegar orsök verkja er þekkt og ekki er þörf á læknisaðstoð - verkjastilling

Ýmis hagnýt ráð til verkjastillingar: 

Verkjalyf: Óhætt er að nýta þau verkjalyf sem fást án lyfseðils í apóteki. Það er alltaf mikilvægt að kynna sér upplýsingar á fylgiseðli lyfsins. Á fylgiseðli má t.d. finna ráðleggingar varðandi skammtastærð og aðvaranir í tengslum við lyfjanotkun. Notkun á verkjalyfjum getur verið áhættusöm fyrir einstaklinga með ákveðna langvinna sjúkdóma.

Kæling: Kæling getur minnkað verki og stillt kláða. Hlutverk kælingar er að hægja á bólgumyndun og flýta á þann hátt fyrir bata. Kæling getur því virkað vel þegar um er að ræða bólgu í vöðvum eða sinum t.d. við tognun. Þegar bruni verður á húð er kæling mjög mikilvæg til að stöðva bruna og hægja á bólgum.
Láttu vatn við stofuhita (um það bil 20°C) renna á áverkasvæðið. Þú getur einnig notað kælipoka eða kalda bakstra. Kæling er ráð sem nýta skal strax við áverka. Gott er að kæla áverkasvæðið af og til fyrsta sólarhringinn. Gæta þarf þess af ofkæla ekki og á það sérstaklega við um börn og eldra fólk.

Heitir bakstrar/hitapokar: Þegar vöðvar eru stífir og bólgnir eru heitir bakstrar eða hitapokar ágætt ráð til verkjastillingar. Heitir bakstrar og hitapokar hafa það hlutverk að örva blóðflæðið um vöðvasvæðið sem hefur góð áhrif á stífleika og bólgu. Gættu þess að hafa hitann ekki of mikinn og notaðu heitan bakstur eða hitapoka eingöngu stutta stund í einu.
Aldrei ætti að sofa með heitan bakstur eða hitapoka.

Hvíld og hreyfing: Þegar skemmd hefur orðið á líkamsvef er gott að taka því rólega fyrst um sinn. Hreyfing er þó jafn mikilvæg og hvíldin í þessu samhengi. Með hreyfingu örvum við blóðflæði um allan líkamann. Með auknu blóðflæði eykst flutningur á alls kyns efnum til og frá skemmda vefnum sem verður til þess að hann grær. Hreyfing er því góð leið til að stilla verki og ná bata. Gott er að auka hreyfingu smám saman og auka virkni jafnt og þétt. Hér á skynsemin að ráða för. Finna gott jafnvægi milli hvíldar og hreyfingar.

Að dreifa athyglinni: Um leið og fólk leiðir hugann að einhverju öðru en verkjunum hefur það jákvæð áhrif á ýmis boðefni líkamans og líðan og upplifun verður mun betri. Allt sem fær fólk til að hugsa á jákvæðan hátt og jafnvel hlæja mun auka vellíðan. Sem dæmi hlusta á góða tónlist, lesa góða bók eða horfa á fyndna kvikmynd. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins bíður upp á námskeið í hugrænni athyglismeðferð

Nudda svæðið

Hvenær skal leita aðstoðar?

Leitaðu sem fyrst til heilsugæslunnar ef:

  • Orsök verksins er óþekkt og/eða verkur er nýtilkominn
  • Verkur er mikill
  • Verkur er vaxandi
  • Áhyggjur eru af verk
  • Verkur og önnur einkenni eins og hiti, ógleði, andþyngsli, svimi

Leitaðu strax á næstu bráðamóttöku ef:

Ráðgjöf hjúkrunarfræðinga er í síma 1700 og á netspjalli heilsuveru alla daga frá 08:00-22:00

Finna næstu heilsugæslu eða bráðamóttöku.​