Tannholdsbólgur (e. gingivitis) eru eins og nafnið gefur til kynna bólgur í tannholdi. Orsakir tannholdsbólgu eru viðbrögð ónæmiskerfisins við bakteríuskán á yfirborði tannarinnar. Bakteríurnar valda þar með ertingu án þess að setjast að í sjálfum vefjunum.
Einkenni
Helstu einkenni tannholdsbólgu eru þau að tannholdið roðnar, bólgnar og það blæðir auðveldlega úr því til dæmis við tannburstun. Einkennin valda oft á tíðum litlum sem engum óþægindum svo fólk tekur ekki eftir þeim. Langvarandi tannholdsbólga leiðri oft til alvarlegri tannholdssjúkdóma.
Hvað get ég gert?
Tannholdsbólga hverfur með bættir tannhirðu. Bursta tennur að minnsta kosti tvisvar á dag. Hreinsa vel á milli tanna með tannþræði eða millibursta.
Þar sem tannholdsbólgur valda oftast litlum sem engum óþægindum er nauðsynlegt að fylgjast vel með tannholdinu og vera á varðbergi ef blæðir úr því við tannburstun.
Eftirlit með tönnum er nauðsynlegt til að viðhalda heilbrigði þeirra. Það er mismunandi hversu oft er mælt með að fara í eftirlit. Tannlæknir metur það hverju sinni en það er lágmark að fara einu sinni á ári. Sjá nánar um reglubundið eftirlit.
Reykingar þrefalda hættuna á tannholdsbólgum. Það er því góð ákvörðun að hætta reykingum.
Hægt er að fá tóbaks- og nikótín ráðgjöf í síma 1700.