Mislingar (e. measles) er veirusjúkdómur sem er mjög smitandi og einkennist af hita og útbrotum um allan líkamann. Sjúkdómurinn getur verið hættulegur sumum einstaklingum en besta forvörnin er bólusetning.
Einkenni
Einkenni mislinga koma fram um 1-3 vikum eftir smit og geta verið mismikil eftir einstaklingum.
Einkenni byrja oft með flensulíkum einkennum:
- Hiti- hjá börnum - hjá fullorðnum
- Hósti
- Höfuðverkur
- Nefrennsli
- Sviði í augum, roði og/eða vatnkennd augu
Síðari einkenni:
- Útbrot á líkama
- Hvítir blettir í munnviki
Á þriðja eða fjórða degi veikindanna koma í flestum tilfellum fram útbrot sem ná yfir allan líkamann og standa í 3-4 daga eða þar til sjúkdómurinn fer að réna.
Smitleiðir
Mislingaveiran er mjög smitandi og berst milli manna með úða frá öndunarfærum (t.d. hósta og hnerra). Veiran getur lifað og valdið smiti í allt að tvær klukkustundir eftir að hún berst út í andrúmsloftið.
Greining
Einkenni mislinga geta verið lík ýmsum öðrum sjúkdómum. Mislingar eru greindir með nefkokssýni sem tekið er á veirupinna.
Meðferð
Sýklalyf gagnast lítið gegn mislingum þó getur verið nauðsynlegt að meðhöndla sýkingar sem eru afleiðingar af sjálfum sjúkdómnum með sýklalyfjum. Önnur meðferð lítur að hvíld, vökvainntekt og næringu.
Hvað get ég gert?
- Hvíld og drekka vel af vökva
- Taka inn hitalækkandi
- Setja volgt vatn í bómul og fjarlægja varlega skorpur úr augum
-
Vera frá leikskóla, skóla eða vinnu í lágmark fjóra daga frá því að útbrotin koma fram.
Fylgikvillar
Mislingar geta haft alvarlegar afleiðingar ef þeir dreifast til annarra hluta líkamans, svo sem lungna eða heila. Dæmi um fylgikvilla:
- Flog (krampar)
- Heilahimnubólga
- Lungnabólga
- Sjónskerðing
Þessi vandamál eru sjaldgæf en sumt fólk er í meiri hættu. Þetta á við um börn og fólk með veikt ónæmiskerfi.
Bóluefni gefur góða vörn gegn mislingum.
Bólusetning gegn mislingum er hluti af barnabólusetningu.
Bólusetning gegn mislingum hófst hér á landi árið 1976, flestir einstaklingar fæddir fyrir 1970 fengu mislinga. Sumir einstaklingar fæddir á árunum 1970-1975 fengu mislinga og aðrir fengu bólusetningu ef óskað var eftir henni.
Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að halda áfram góðri þátttöku í bólusetningum því aðeins á þann hátt má halda þessum alvarlega smitsjúkdómi frá landinu. Rétt er takmarka ferðalög með óbólusett börn til landa þar sem hætta er á smiti.