Mænusótt (polio) eða lömunarveiki er smitsjúkdómur af völdum veiru sem leggst getur á taugakerfi líkamans. Í flestum tilfellum eru einkenni sjúkdómsins væg en í sumum getur hann valdið lömun sem getur leitt til dauða. Þeir sem eru í mestri hættu á að veikjast af sjúkdómnum eru nýburar, ung börn og óbólusettir einstaklingar. Hættan á að lamast af völdum sjúkdómsins eykst með hækkuðum aldri.
Einkenni
Langflestir eða um 90-95% af þeim sem veikjast fá væg flensulík einkenni sem geta lýst sér sem:
- Almennur slappleiki
- Hiti - hjá börnum - hjá fullorðnum
- Minnkuð matarlyst
- Ógleði
- Uppköst
- Særindi í hálsi
- Hægðatregða - hjá börnum - hjá fullorðnum
- Kviðverkir
Alvarlegri einkenni:
- Verkir og minnkaður kraftur í stoðkerfi líkamans
- Hnakkastífleiki
- Vöðvarýrnun
- Hæsi
- Erfiðleikar við öndun og kyngingu
Í alvarlegustu tilfellunum verður:
- Vöðvalömun
- Lömun á þvagblöðru
- Óróleiki
- Ósjálfrátt slef
- Þaninn kviður
Smitleiðir
Mænusóttarveiran er mjög smitandi og getur borist í menn með úðasmiti þ.e. með úða frá öndunarfærum (t.d. með hnerra) en einnig með saurmengun í drykkjarvatni og mat. Veiran getur verið til staðar í margar vikur í hægðum þeirra sem eru smitaðir. Til að verjast smiti er hreinlæti mikilvægt og er þar góður handþvottur mikilvægastur.
Greining
Auk læknisskoðunar er hægt að greina mænusóttarveiruna með því að mæla mótefni gegn veirunni í blóði og í heila-og mænuvökva. Einnig er hægt að greina veiruna í saur- eða þvagsýni og/eða með stroki frá hálsi.
Meðferð
Engin meðferð eða lyf eru til sem lækna sjúkdóminn. Almennt beinist meðferð að því að draga úr einkennum.
- Bólusetning gegn mænusótt er hluti af barnabólusetningu.
- Bólusetning er áhrifarík til að koma í veg fyrir sjúkdóminn hjá ungum börnum. Mikilvægt er að byrja að bólusetja ung börn því sjúkdómurinn er hættulegastur yngstu börnunum.
- Mælt er með að fullorðnir láti bólusetja sig gegn mænusótt á 10 ára fresti.