Til að örva hreyfiþroska er gott að barnið fái að hreyfa sig frjálst á gólfi. Eftirfarandi æfingar/leikir miða að því að styrkja barnið almennt, auka úthald þess og hjálpa því til að fara að hreyfa sig um. Ekki er ætlast til að barnið geri æfingarnar allar í hvert sinn og röð þeirra skiptir ekki máli. Mikilvægt er að notfæra sér forvitni barnsins til að spinna leik inn í æfingarnar og spreyta sig þannig á að nota hendurnar í leiðinni.
Gerið æfingarnar að leik. Hrósið og hvetjið barnið til dáða.
Tillögur að æfingum fyrir lin börn
- Ef barnið er lint í hrygg og axlarvöðvum er gott að það liggi sem mest á maganum og fái að spreyta sig þannig í leik undir eftirliti. Með því að styðja létt við rass barnsins og halda undir bringu má aðstoða barnið við að sperra sig upp og lyfta höfði.
- Það eru margar leiðir við að hvetja barnið til dáða. Leggja má barnið yfir sundbolta. Velta má boltanum mjúklega fram og aftur og til hliðanna til að reyna á mismunandi vöðva. Þessi æfing styrkir axlar- og hryggvöðva og örvar jafnvægisviðbrögð.
- Til að styrkja handleggi og efri hluta líkamans er barni velt yfir sívaling þannig að það taki þunga á handleggina. Þetta verður auðveldara fyrir eftir því sem haldið er ofar á líkamanum, auðveldast ef haldið er um mitti eða mjaðmir. Það má líka notað annað lærið á sér í sama tilgangi. Sívaling má kaupa í íþróttavörubúðum eða útbúa þannig að þykku handklæði er rúllað þétt upp og plástrað saman.
- Það má líka halda á barninu þannig að það kræki fótum um mittið á þeim sem heldur á því. Haldið er undir kvið eða brjóstkassa og þá getur það sperrt sig upp til að styrkja bakið. Ef staðið er fyrir framan borð getur barnið stutt sig á beina arma til að styrkja handleggi og axlarvöðva. Þetta verður erfiðara eftir því sem haldið er neðar á líkamanum.
- Það er auðveldara fyrir barnið að liggja yfir upprúlluðu handklæði, skápúða eða pullu þegar það leikur sér á gólfinu. Þá á það hægara með að lyfta höfðinu upp og kíkja í kringum sig. Setjið leikföng fyrir framan barnið og sitt hvoru megin við það. Það hvetur barnið til hreyfinga.
- Aðstoðið barnið við að velta sér til beggja hliða á gólfinu, af baki yfir á maga og af maga og yfir á bak. Notið hægar hreyfingar svo barnið geti tekið þátt.
- Til þess að hvetja barnið til að fara upp á fjóra fætur má setja það yfir pullu og beygja undir það hnén svo það taki þunga á bæði hné og beina arma.
- Þegar barnið er lengra komið, má hjálpa því með að taka þunga á iljarnar á meðan það liggur yfir pulluna, aðra í einu eða báðar í senn.
- Leyfið barninu að sitja þannig í kjöltu ykkar að það þurfi að spreyta sig á því að halda sér uppi án þess að styðja sig eða halla sér upp að ykkur. Best er að það hafi báðar iljar þétt í gólfi og stutt sé á hnén á því þannig að þrýstingur á fótleggi komi niður á iljarnar.
- Það má líka leyfa barninu að sitja á pullu með iljar í gólfi og styðja sig á hendurnar fram á við um leið. Ekki veita of mikinn stuðning við bakið.
- Að sitja í „hafmeyjarstöðu" bæði til hægri og vinstri gefur barninu kost á að bera fyrir sig hendurnar til hliðanna. Hjálpið barninu að rétta úr olnboganum og hvetjið það til að leika sér með hinni hendinni. Þetta er undanfari þess að barnið fari úr sitjandi stöðu yfir á magann, að skríða og setjast upp aftur.
- Sitjið með barnið í kjöltunni og hallið því fram á við þannig að það verði að bera fyrir sig hendurnar til að detta ekki á nefið. Það er styrkjandi fyrir bak og handleggi og er undanfari þess að barnið geti farið að reisa sig sjálft upp frá gólfi. Þegar barnið hefur getu og þroska má hjálpa því að krjúpa upp við lágan stall, pullu eða ykkur sjálf til að auka jafnvægi kringum mjaðmirnar og auka styrk og úthald í uppréttri stöðu.
- Til að barnið fái tilfinningu fyrir að stíga í fæturna, má hvetja það til að lyfta rassinum úr skriðstöðu og ýta sér upp með höndunum til að standa. Gott er að halda við mjaðmir barnsins til að veita hæfilegan stuðning. Þetta eflir stöðugleika í mjöðmum, öxlum og baki auk þess sem það ýtir undir jafnvægisviðbrögð og tilfinningu fyrir að vera í uppréttri stöðu.