Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Hjartaþelsbólga

Kaflar
Útgáfudagur

Hjartaþelsbólga (e. endocarditis) er bólga í innra lagi hjartans. Oftast er bólgan afleiðing bakteríusýkingar. Bakteríur geta borist til hjartans með blóðrásinni (oftast frá munni, þörmum eða húð). Algengast er að sýkingin leggist aðallega á hjartalokurnar.

Einkenni

Einkenni geta komið skyndilega fram eða þróast hægt yfir lengri tíma  

Fyrstu einkenni geta minnt á flensulík einkenni, sem dæmi: 

Önnur einkenni: 

  • Litlir rauðir, brúnir eða fjólubláir dílar á húðinni 
  • Rauðar eða rauðbrúnar rendur undir nöglum
  • Rauð sársaukafull útbrot á fingurgómum 
  • Rauð sársaukalaus útbrot í lófum eða iljum 
  • Minnkuð matarlyst
  • Óáttun
  • Óhóflegt þyngdartap 

Algengi

  • Algengari hjá eldra fólki 
  • Algengari hjá körlum en konum  

Smitleiðir

Bakteríur þurfa að komast í blóðið og ferðast þaðan í hjartað. Það eru nokkrar leiðir fyrir bakteríur að komast inn fyrir varnir líkamans.

  • Gegnum munn, léleg tannhirða eykur líkur á sýkingu
  • Nálar, æðaleggir eða aðrir leggir sem þarf að setja inn fyrir varnir líkamans til dæmis þvagleggir
  • Út frá eldri sýkingarstað ef sýking er ómeðhöndluð 

Áhættuþættir

  • Fólk með gervihjartalokur 
  • Fyrri hjartaþelsbólga 
  • Hjartalokusjúkdómar 
  • Hjartavöðvakvilli (e. cardiomyopathy) 
  • Léleg tannheilsa 
  • Meðfæddir hjartagallar
  • Notkun vímuefna í æð
  • Vannæring
  • Veiklað ónæmiskerfi

Orsök

  • Bakteríur
  • Sveppir

Hjartaþelsbólga kemur í flestum tilfellum til vegna baktería. Sveppir geta valdið sýkingum í hjartalokum en það eru mun sjaldgæfara en bakteríusýking. 

Greining

  • Blóðprufa
  • Hjartaómskoðun 
  • Líkamsmat 
  • Sjúkrasaga
  • Sneiðmyndataka 

Meðferð

Oftast gefið með inndælingu í æð

Forvarnir

Mikilvægt er fyrir fólk sem notar vímuefni um æð að huga að hreinlæti, nota hreinar nálar og vera í góðu sambandi við heilbrigðisstarfsmenn. Hægt er að leita skaðaminnkandi úrlausna Rauðakrossins fyrir frekari stuðning.

Góð munn- og tannhirða

Fylgikvillar

Hvenær skal leita aðstoðar?

Leita til næstu heilsugæslu ef:

  • Hiti hefur varað í 3 sólarhringa 

Ef hár hiti og höfuðverkur er til staðar ásamt: 

  • Skert ónæmiskerfi
  • Nýleg hjartaaðgerð/hjartalokuaðgerð 
  • Notkun á óhreinum sprautunálum
  • Saga um fyrri hjartaþelsbólgu  

Finna næstu heilsugæslu eða bráðamóttöku.