Hitakrampi (e. heat cramps) geta komið í kjölfar sótthita hjá börnum. Stuttir hitakrampar eru yfirleitt hættulausir og valda barninu ekki skaða. Það er óhuggulegt að sjá hitakrampa í fyrsta skipti og alltaf skal þá leita til læknis og/eða hringja á sjúkrabíl. Einnig skal leita læknis þegar krampi stendur yfir í meira en fimm mínútur eða ef endurteknir krampar eiga sér stað.
Einkenni
- Hitakrampar eru algengastir þegar hiti hækkar hratt í upphafi veikinda
- Oft byrjar hitakrampinn á kokhljóði sem verður vegna samdráttar í vöðvum
- Skyndileg skerðing á meðvitund
- Augu renna upp á við
- Barnið stífnar upp og/eða taktfastir kippir fara um líkamann
- Öndun verður grunn og óregluleg
- Blámi eða fölvi á vörum og kringum munninn
- Flestir hitakrampar standa í hálfa til þrjár mínútur en geta staðið lengur
- Sótthiti yfir 38˚C eftir krampa
- Börn verða oftast mjög þreytt eftir að krampa lýkur og sofna oftast, en svara áreiti
Algengi
Um 5% barna fá hitakrampa a.m.k. einu sinni. Yfirleitt eru þetta börn á aldrinum 1-3 ára. Eftir fyrsta hitakrampa eru 30% líkur á endurtekningu
Orsök
Orsök hitakrampa er sótthiti, oftast af völdum umgangspesta. Ekki er vitað af hverju sum börn fá hitakrampa en önnur ekki. Hitakrampi hjá heilbrigðu barni hefur ekki áhrif á þroska.
Hvað get ég gert?
- Vera róleg, barnið er ekki í lífshættu.
- Taka tímann, hversu lengi varir krampinn?
- Leggja barnið niður og á hliðina, þar sem það meiðir sig ekki á neinu. Einnig til að hugsanleg uppköst og munnvatn renni út úr munni þess en ekki ofan í kok.
- Fylgjast með framvindu krampans, þ.e. hvar er barnið stíft, hvar eru kippir, hvernig eru augu og litarháttur barns. Tala rólega til barnsins meðan krampinn stendur yfir.
- Þegar krampinn hættir, reynið að lækka hita hjá barninu og láta því líða vel t.d. með því að hafa það einungis á nærfötum og gefa því hitalækkandi lyf.
Hvenær skal leita aðstoðar?
Leitaðu til bráðamóttöku ef:
- Ef barnið hefur ekki fengið hitakrampa áður
- Hitakrampi varir ennþá eftir fimm mínútur
- Annar krampi byrjar fljótlega eftir að sá fyrsti hættir
- Barnið er ekki með fulla meðvitund fyrir krampa
- Barnið er ekki með fulla meðvitund einni klukkustund eftir krampa
- Þig grunar að sótthitinn hjá barninu geti verið vegna alvarlegra veikinda, t.d. ef þig grunar að barnið sé með alvarlega sýkingu eins og heilahimnubólgu
Finna næstu heilsugæslustöð eða bráðamóttöku hér.