Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Hettusótt

Kaflar
Útgáfudagur

Hettusótt (e. mumps) er bráð og smitandi veirusýking sem leggst oftar á börn en fullorðna. Sýkingin er yfirleitt hættulaus og gengur fljótt yfir en hún er þekkt fyrir að valda alvarlegum fylgikvillum sérstaklega hjá unglingum og fullorðnum. Við sýkingu myndar líkaminn vörn við veirunni þannig að fólk fær hettusótt bara einu sinni sé ónæmiskerfið í lagi.

Einkenni

Einkenni sjúkdómsins eru oftast væg hjá börnum en leggjast þyngra á unglinga og fullorðna. Helstu einkenni eru:

  • Hiti - hjá börnum - hjá fullorðnum
  • Bólga og særindi í munnvatnskirtlum
  • Erfiðleikar við að tyggja
  • Höfuðverkur
  • Lystarleysi
  • Slappleiki

Smitleiðir

Smit berst með úða frá öndunarfærum (t.d. með hnerra). Tíminn frá smiti þar til einkenni koma fram er um 2-3 vikur. Sjúkdómurinn getur verið misalvarlegur, sumir eru nánast einkennalausir meðan aðrir geta orðið mikið veikir og fengið fylgikvilla.

Greining

Grunsemdir um sjúkdóminn fást með læknisskoðun, en staðfesting fæst með mótefnamælingu í blóði eða ræktun veirunnar í munnvatni.

Meðferð

Engin sértækt meðferð er til við hettusótt. Einstaklingum með hettusótt er ráðlagt að drekka vel, vera í hvíld og nota verkjalyf. Halda skal börnum heima þar til einkenni sjúkdómsins hafa gengið yfir. Í alvarlegri tilvikum getur þurft að leggja fólk inn á sjúkrahús.

 

Mynd sem sýnir einkenni hettusóttur, bólgu á hálsi á barniMynd sem sýnir einkenni hettusóttar, bólgu á hálsi á fullorðnum

Fylgikvillar

Alvarlegir fylgikvillar eru sjaldgæfir en geta verið til dæmis; heilabólga, heyrnarskerðing, brisbólga, bólga í brjóstum, eggjastokkum eða eistum. Bólga í síðast töldu líffærunum getur valdið ófrjósemi.

 Unglingar og fullorðnir fá frekar fylgikvilla en börn.

Hvenær skal leita aðstoðar?

Ef grunur er á hettusótt skal hafa samband við næstu heilsugæslustöð

Finna næstu heilsugæslustöð

Forvarnir

Bólusetning er besta forvörnin gegn hettusótt. Bólusetning gegn hettusótt hófst hér á landi 1989 sem hluti af barnabólusetningum. Bólusetning veitir góða vörn gegn sjúkdómnum. Aukaverkanir af bólusetningum eru almennt vægar.

Fólk fætt fyrir 1985 fékk flest hettusótt. Fólk fætt á árunum 1985-1987 fékk flest bólusetningu við 12 ára aldurinn í almennri bólusetningu.

Það er hægt að smitast af hettusótt þrátt fyrir bólusetningu en bólusettir fá líklegast vægari einkenni. 

Fyrirkomulag barnabólusetninga.