Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Gyllinæð

Kaflar
Útgáfudagur

Myndin sýnir innri og ytri gyllinæðGyllinæð (e. hemorrhoids) eru bólgnar bláæðar (æðahnútar) sem geta bæði legið utan á endaþarmi eða inni í endaþarmi. Stærðin getur verið á við litla baun en einnig á stærð við vínber. Algengasta orsökin er hægðatregða eða aukinn þrýstingur frá kviðarholi, t.d. vegna meðgöngu eða offitu.

Gyllinæð er ekki hættuleg en getur valdið óþægindum og verkjum. Í sumum tilfellum getur þurft að fjarlægja hana með inngripum svo sem skurðaðgerð.

Talið er að helmingur fólks fái einhvern tíma á ævinni gyllinæð.

Einkenni

Gyllinæð getur verið einkennalaus en oft eru eftirfarandi einkenni til staðar:

  • Útbungun í kringum endaþarmsop
  • Ferskt blóð með hægðum
  • Kláði í húð við endaþarm
  • Verkir við endaþarm
  • Aukin tilfinning fyrir hægðalosun
  • Slím í nærbuxum eða á pappír þegar endaþarmur er þurrkaður

Meðferð

Viðtal/Skoðun hjá heilsugæslulækni

  • Algengasta lyfjaformið eru endaþarmsstílar sem innihalda stera, staðdeyfandi lyf og hafa húðverndandi eiginleika. Oft er mælt með notkun stíla og krema samtímis. Stílarnir eru lyfseðilsskyldir. 
  • Ávísuð lyf notast samkvæmt leiðbeiningum eða þar til einkenni eru horfin.

Ef hefðbundin meðferð virkar ekki þá getur þurft að framkvæma skurðaðgerð í stuttri svæfingu þar sem gyllinæðin er skorin í burtu.

Hvað get ég gert?

Mikilvægast er að halda hægðum mjúkum til að forðast mikinn þrýsting niður í endaþarm og minnka líkur á blæðingu. Gyllinæð lagast oft af sjálfu sér með eftirfarandi ráðum:

  • Borða trefjaríkt fæði, t.d. ávexti, grænmeti og heilkorn til að halda hægðum mjúkum.
  • Drekka 6-8 glös af vatni daglega.
  • Hreyfing hjálpar til við að halda hægðum eðlilegum.
  • Volgt bað 2-3 sinnum á dag í 10-15 mínútur gæti hjálpað, það eykur blóðflæði og slakar á vöðvum við endaþarm.
  • Kæligel og pokar getur verið gott að leggja við húð í kringum endaþarmsop við kláða og verkjum.
  • Gyllinæðakrem er hægt að fá í apótekum í lausasölu og getur starfsfólk apóteka veitt ráðgjöf varðandi lyf. Ekki ætti að nota slík lyf lengur en um vikutíma án samráðs við lækni.
  • Ef þörf er á má taka verkjalyf eins og paracetamol en forðast verkjalyf með kódeini þar sem kódein herðir hægðir.
  • Forðast langar setur á salerni þar sem það veldur þrýstingi niður í endaþarmsop.
  • Komast hjá því að rembast mikið við hægðalosun og nota mjúkan salernispappír.
  • Halda húð í kringum endaþarmsop hreinni og þurri.
  • Forðast koffín og alkóhól þar sem þau geta hert hægðir.

Hvenær skal leita aðstoðar?

Ráðlagt er að leita til heilsugæslunnar ef:

  • Ráð heima bæta ekki ástandið á innan við viku
  • Blæðir úr endaþarmi
  • Slím eða hægðir renna úr endaþarmi
  • Gyllinæð kemur endurtekið
  • Hiti og almenn veikindaeinkenni eru til staðar
  • Gröftur kemur úr gyllinæð
  • Mikill sársauki er við hægðalosun

Finna næstu heilsugæslu.