Brjóstsviði (e. heartburn) eða nábítur er sviði yfir brjósti og upp í háls. Verkurinn versnar oft eftir máltíðir og eins við að beygja sig fram. Algengasta ástæða brjóstsviða er að magainnihald lekur úr maganum og upp í vélindað. Oftast er þetta meinlaust og ýmislegt hægt að gera til minnka líkur á brjóstsviða.
Hvað get ég gert?
Nokkur ráð sem geta hjálpað við brjóstsviða:
- Brjóstsviðalyf er hægt að fá í apóteki án lyfseðils.
- Forðast að borða 2-3 tímum fyrir svefn.
- Forðast að beygja sig eða leggjast niður rétt eftir máltíðir.
- Sofa með hærra undir höfðalagi.
- Borða minni skammta oftar yfir daginn.
- Forðast of þröng föt í mittið.
- Forðast þær fæðutegundir sem valda helst brjóstsviða:
- Kryddaður matur
- Feitur matur
- Áfengi
- Kaffi
- Súkkulaði
- Sitrus ávextir (t.d. appelsínur og sítrónur)
- Tómatar
- Edik
- Tóbak
Hvenær skal leita aðstoðar?
Leitaðu til heilsugæslunnar á næsta sólarhring ef:
- Brjóstsviðatöflur virka ekki á verkinn.
- Verkurinn versnar eða kemur oftar.
- Erfiðleikar eða sársauki við að kyngja.
- Þyngdartap eða lystarleysi.
Leitaðu strax á bráðamóttöku ef brjóstsviðanum fylgja einhver af eftirfarandi einkennum:
- Mæði og erfiðleikar með andardrátt.
- Köld og þvöl húð.
- Verkur í kjálka, öxlum, baki eða höndum.
- Bláleitt eða grátt andlit, varir, eyrnasnepplar eða fingur.
- Yfirlið.
- Uppköst sem eru blóðug eða eins og kaffikorgur.