Blöðruhálskirtillinn er lítill kirtill sem liggur á milli getnaðarlims og þvagblöðru. Hlutverk hans er að framleiða sáðvökva sem nærir og verndar sáðfrumur. Blöðruhálskirtillinn getur bólgnað (e. prostatitis) sem veldur oftast óþægindum.
Orsök
- Bráð blöðruhálskirtilsbólga orsakast oftast þegar bakteríur komast upp þvagrásina og inn í blöðruhálskirtilinn
- Langvarandi bólga í kirtlinum getur komið án sýkingar og erfitt getur verið að finna orsökina
Einkenni
Bráð bólga í blöðruhálskirtli
- Blóð í þvagi
- Erfiðleikar með að byrja þvaglát
- Sárir verkir á kynfærasvæði. Í eða við getnaðarlim, pung og/eða endaþarm
- Sársaukafullir verkir neðarlega í kvið, í mjóbaki eða við hægðir
- Sársauki við þvaglát
- Tíð þvaglát (einkum á nóttunni) og/eða bráð þvaglátsþörf
- Slappleiki og vanlíðan ásamt verkjum og/eða háum hita
- Verkir í mjóbaki við sáðlát
- Þvagteppa
Langvinn bólga í blöðruhálskirtli
Eitt eða fleiri af eftirfarandi einkennum hefur verið til staðar í þrjá mánuði eða lengur:
- Verkur á kynfærasvæði. Í eða við getnaðarlim, pung eða endaþarm
- Verkur neðarlega í kvið eða í mjóbaki
- Sársauki við þvaglát
- Tíð eða bráð þvaglátaþörf
- Næturþvaglát (oftar en einu sinni á nóttu)
- Erfitt að tæma þvagblöðruna eða erfiðleikar að hefja þvaglát
- Vandamál tengd kynlífi til dæmis riserfiðleikar, sársauki við sáðlát eða verkir í grindarholi eftir kynlíf
- Stækkaður eða aumur blöðruhálskirtill við endaþarmsskoðun
Áhættuþættir
Aukin hætta er á bráðri bólgu í blöðruhálskirtli ef eftirfarandi á einnig við:
- Áverkar á grindabotn
- Endaþarmsmök
- HIV og/eða alnæmi
- Kynsjúkdómur
- Þvagfærasýking
- Þvagleggur er í þvagrás
Hætta á langvinnri bólgu í blöðruhálskirtli hækkar ef:
- Aldur er yfir 50 ára
- Fyrri saga um bólgu í blöðruhálskirtli
- Meltingarfærakvillar eru til staðar
Meðferð
Meðferð fer eftir einkennum og sögu en dæmi um lyfjameðferð er:
- Hægðalosandi lyf
- Sýklalyf
- Verkjalyf
- Vöðvaslakandi lyf
Hvenær skal leita aðstoðar?
Leita til næstu heilsugæslu ef:
- Ofangreind einkenni eru til staðar
Leita til bráðamóttöku ef:
- Þvagteppa á sér stað
- Einkenni eru slæm
Finna næstu heilsugæslu eða bráðamóttöku hér.