Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Bakverkur

Kaflar
Útgáfudagur

Bakverkur (e. backpain)  getur komið vegna vandamála í vöðvum, liðböndum, brjóski, beinum eða taugum í bakinu. Bakverkur getur líka verið einkenni ýmissa sjúkdóma sem bregðast þarf við. Oftast kemur verkurinn fram vegna spennu eða tognunar á vöðvum eða liðböndum í neðri hluta baks. Sá bakverkur er sjaldnast alvarlegur og hverfur yfirleitt af sjálfu sér á nokkrum dögum.

Orsakir

Bakverkur getur verið af fjölþættum ástæðum. Dæmi um orsakir: 

Tak í baki er algengasta ástæða verkja í baki. Þetta er stundum kallað skessuskot eða þursabit og getur komið mjög skyndilega. Ráðin hér að neðan gagnast vel við takverk í baki.

Brjósklos eða útbungun á brjóski getur valdið leiðsluverkjum frá baki út í útlimi.

Nýrnasteinar valda skyndilegum mjög slæmum verkjum sem koma oft í bakið öðrum megin ofarlega

Nýrnasýking veldur gjarnan verkjum ofarlega í baki, henni fylgja gjarnan önnur einkenni frá þvagfærum ásamt hita.

Hvað get ég gert?

Ef þú telur líklegast að bakverkurinn sé vegna taks í bakinu eru hérna ráðleggingar sem gætu hjálpað:

  • Taka því rólega í 2-3 daga en ekki liggja í rúminu. Halda rólegri virkni eins og að ganga en forðast langar setur, að lyfta hlutum og hoppa þar til bakverkurinn hefur lagast.
  • Prófa stífari dýnu og nota kodda til stuðnings til dæmis undir hné á nóttunni.
  • Taka inn verkjalyf sem fást án lyfseðils í apótekum.
  • Leggja hitapoka á svæðið í 20 mínútur á 2-4 tíma fresti en gæta þess að sofa ekki með hitapoka.
  • Leit til heilsugæslunnar ef bakverkurinn er ekkert farinn að lagast á 3-4 vikum.

Besta ráðið til að fyrirbyggja bakverk er að styrkja bakvöðvana og kviðvöðvana. Hér má finna nokkrar góðar almennar styrktaræfingar sem geta hjálpað og auðvelt er að gera heima.

Á flestum heilsugæslustöðvum er heilsueflandi móttaka. Þar getur þú fengið aðstoð ef þig vantar stuðning til að efla heilsu, auka lífsgæði eða hjálp til að ná betri stjórn á aðstæðum þínum. 

Hjálplegt getur verið að fá meðferð hjá sjúkraþjálfara. Hægt er að fá 6 skipti niðurgreidd hjá sjúkraþjálfara án tilvísunar frá lækni. 

Hér má finna ráð til þess að breyta venjum sínum.

Hvenær skal leita aðstoðar?

Leitaðu til heilsugæslunnar ef eftirfarandi einkenni eru samhliða bakverknum:

  • Verkur leiðir niður í rass eða fótlegg eða út í handlegg
  • Stöðugur og mikill verkur sem lagast ekki þrátt fyrir verkjalyf
  • Tíð þvaglát eða verkur við þvaglát
  • Ef þú ert með sykursýki, veikt ónæmiskerfi eða þarft að taka steralyf að staðaldri
  • Ef þú hefur fengið krabbamein og verið að léttast undanfarið
  • Verkurinn er verri um nætur eða þegar lagst er niður
  • Blöðrur, útbrot og sársauki eru á sama stað og verkurinn
  • Þrálátur doði eða náladofi í fótlegg eða fæti
  • Langvarandi missir á stjórn á hægðum eða þvagi
  • Hiti með ógleði/uppköstum hjá körlum

Leitaðu strax á næstu bráðamóttöku ef eitthvað af eftirfarandi einkennum eru samhliða bakverknum:

  • Aukið máttleysi í fótleggjum, erfitt að hreyfa fótleggi, fætur eða tær
  • Skyndilegur doði eða náladofi í fótlegg, fæti, nára eða við endaþarm
  • Missir skyndilega stjórn á hægðum eða þvagi
  • Ekki getað pissað í meira en 8 tíma
  • Verkur og blóð við þvaglát
  • Köld og þvöl húð
  • Verkur leiðir út í háls, axlir, kjálka eða handleggi
  • Verkur leiðir út í nára eða kynfæri
  • Hiti með ógleði/uppköstum hjá konum

Finna næstu heilsugæslu eða bráðamóttöku