Afrifur í húðfellingum (e. intertrigo) eða sprungur á húð verða vegna raka og núnings á viðkvæmri húð. Í upphafi verður húðin rauð og upphleypt og ef ekkert er gert getur húðin rofnað og sprungið. Heitt og rakt loft eykur líkur á húðrofi en algeng svæði afrifa eða sprunga eru á milli táa, undir brjóstum eða húðfellingum á kvið og undan bleyjum.
Einkenni
Roði eða útbrot myndast í húðfellingu og eru yfirleitt staðbundin. Helstu einkenni eru:
- Kláði
- Sviði
- Óþægindi
- Verkur
Einkenni geta versnað hratt ef ekkert er að gert og aukast þá líkur á sveppa- eða bakteríusýkingum.
Einkennandi fyrir sýkingu í afrifum:
- Aukin bólga
- Aukinn roði
- Óreglulegur roði
- Húðrof
- Vessar úr afrifunni
- Blæðir úr afrifunni
- Sýkt svæði lyktar illa
Hvað get ég gert?
Þessi ráð miða að því að halda húðinni á viðkvæmum svæðum heilli.
- Almennt hreinlæti og halda húðinni hreinni og þurri
- Leggja grisjur eða bómullarefni á milli húðfellinga til að draga úr núningi og auka loftun um svæðið
- Bera vatnsfráhrindandi og græðandi krem á hreina og þurra húð en þau má nálgast í lyfjaverslunum, til dæmis:
- A+D zink oxide
- Penaten
- Vaselín
- Barnapúður
- A+D Original Ointment
- Bepanthen
Hvenær skal leita aðstoðar?
Leitaðu til heilsugæslunnar ef þú heldur að um sýkingu sé að ræða. Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslustöð getur metið þörf á meðferð og gefið góð ráð.