Flestir foreldar líta á það sem eina dýrmætustu lífsreynslu sína að eignast barn. Það er flestum mikil hamingja að fá í fangið litla, ósjálfbjarga mannveru til að vernda, hlúa að, sjá vaxa og dafna og verða smám saman að sjálfstæðri manneskju sem heldur lífskeðjunni við.
Margir telja að fjölskyldan og foreldrahlutverkið hafi aldrei verið mikilvægara en í þjóðfélagi nútímans. Um leið og foreldrar nýfædds barns takast á hendur þessa auknu ábyrgð hljóta þeir að velta fyrir sér ýmsum áhrifum foreldrahlutverksins á sína eigin tilveru.
Stór hluti barna eru alin upp af foreldrum sem búa ekki saman. Félagsmálaráðuneytið hefur fjármagnað gagnreynd netnámskeið sem eru fólki að kostaðarlausu og aðstoða fólk við að vera í samvinnu eftir skilnað - barnanna vegna. Þau nýtast einnig vel fyrir fólk í öðrum aðstæðum til að bæta samvinnu foreldra.