Konum, sem eiga að baki eðlilega meðgöngu og fæðingu og eignast heilbrigt barn, gefst kostur á að fara heim og njóta þar umönnunar ljósmóður. Miðað er við heimferð fjölbyrju innan 12 klukkustunda frá fæðingu og frumbyrju innan 24 klukkustunda frá fæðingu.
Lágmarksdvöl á sjúkrahúsi eftir fæðingu er 4 klst. Kona og barn (eftir atvikum fjölskyldan) dvelja á sængurlegudeild/stofu meðan á dvöl þeirra á stofnuninni stendur. Eftir fæðingu á LSH býðst foreldrum að dvelja á meðgöngu- og sængurlegudeild í allt að 24 klst eftir eðlilega fæðingu. Þær konur sem hafa fætt áður fara gjarnan heim fyrr eða innan 12 klst. Kona og barn sem þurfa sérstaka umönnun og/eða eftirlit þurfa oft að dvelja lengur á sjúkrahúsinu. Á öðrum fæðingarstöðum getur fyrirkomulagið verið eitthvað frábrugðið.
Þegar fjölskyldan útskrifast heim innan sólarhrings frá fæðingu, stendur þeim til boða að þiggja vitjanir frá ljósmóður í heimaþjónustu næstu 6-10 daga. Ljósmóðir kemur heim til fjölskyldunnar innan 12-16 klst frá útskrift og það er hægt að hafa samband við hana í síma ef vandamál koma upp milli heimsókna.
Konum sem eru að fæða í fyrsta sinn býðst að fá allt að 7 heimsóknir ljósmóður en konur sem hafa fætt áður 6 heimsóknir.
Mæður sem fæða með keisaraskurði eiga þess kost að útskrifast í heimaþjónustu eftir 48 klst. Þó frávik hafi verið í heilsufari móður eða barns og þau þurft lengri dvöl á sjúkrahúsi geta þau útskrifast í heimaþjónustu allt að 72 klst. eftir fæðingu. Ákvörðunin er ávallt tekin með hliðsjón af aðstæðum hverju sinni í samráði við móður/fjölskyldu og fagfólk. Starfsmenn sængurlegudeild hafa samband við ljósmóður í heimaþjónustu sem mun sinna konu og barni heima fyrir útskrift af deild.
Mælt er með að mæður og börn sem greind eru með alvarleg heilsufarsvandamál og þarfnast náins eftirlits liggi sængurlegu. Sængurlega er sjaldnast lengur en 3-5 dagar en fer þó eftir aðstæðum hverju sinni.
Gott er að nýta tímann á spítalanum vel til að öðlast færni í fyrstu skrefum brjóstagjafar og fá leiðsögn frá ljósmóður þegar barnið er tilbúið að fara á brjóst. Það eykur líkur á að vel takist til og veitir aukið öryggi þegar heim er komið. Ef þörf er fyrir sérstakri ráðgjöf um brjóstagjöf er hægt að óska eftir tilvísun í brjóstagjafaráðgjöf hjá heilbrigðisstarfsmanni.
Frekari upplýsingar um sængurlegu Landspítala má sjá hér.
Á fæðingardeildum er nýburinn skoðaður af barnalækni og/eða ljósmóður fyrir heimferð og fer skoðunin fram inni á herbergi fjölskyldunnar. Foreldrar fá tíma fyrir barnið í aðra skoðun hjá barnalækni þegar barnið er 5-7 daga gamalt. Heyrnarmæling er gerð í þessari skoðun og barnið er vigtað. Skoðunin fer fram á jarðhæð Barnaspítala Hringsins.
Fyrsta heimavitjun frá heilsugæslunni er ráðlögð um tveimur vikum eftir fæðingu. Til að bóka fyrstu vitjun skal hafa samband við ung- og smábarnavernd heilsugæslu fljótlega eftir heimkomu til að láta vita af fæðingu barns.
Finna næstu heilsugæslu hér.