Góð munnheilsa verðandi móður leggur grunninn að tannheilsu barns. Bakteríur sem valda tannskemmdum geta smitast frá móður til barns.
Á meðgöngu er meiri hætta á tannskemmdum og bólgum í tannholdi. Góð munnhirða er því mjög mikilvæg barnshafandi konum til að koma í veg fyrir þessi vandamál.
Matarvenjur breytast gjarnan á meðgöngu og það getur aukið líkur á tannskemmdum. Mikilvægt er að huga að neysluvenjum sem stuðla að góðri tannheilsu og forðast sæta millibita. Ef bakflæði á sér stað á meðgöngu er meiri hætta á súrum tönnum.
Hormónabreytingar sem verða á meðgöngunni geta minnkað viðnám tannholdsins þannig að þunguðum konum er hættara við tannholdsbólgum. Vönduð tannhirða er því sérlega mikilvæg á meðgöngunni og dregur úr líkum á tannholdsbólgum. Ekki bara fyrir tannheilsu móðurinnar heldur einnig fyrir tannheilsu barnsins sem hún ber undir belti.
Tannhirða sem dregur úr líkum á tannskemmdum og tannholdsbólgum felst í því að:
- Bursta tennur með flúortannkremi að lágmarki tvisvar á dag. Bursta vel með mjúkum bursta við tannholdsbrún og nota millibursta.
- Tyggja xylitol-tyggjó nokkrum sinnum á dag.
- Nota tannþráð daglega.
- Flúorskola daglega fyrir svefninn.
- Klórhexidín munnskol eftir þörfum.