Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Svefntruflanir

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Svefntruflanir geta verið af ýmsum toga. Tímabundið svefnleysi er algengur kvilli með tilheyrandi dagsyfju og vanlíðan næsta dag. Ástæður svefntruflana geta verið ýmiskonar t.d. áhyggjur, álag, verkir, sjúkdómar,vímuefnaneysla eða aukaverkanir lyfja. Vaktavinna, óreglulegt eða breytt lífsmunstur getur líka truflað svefn. Svefntruflanir aukast með aldrinum og eru algengar meðal kvenna á breytingaskeiði. Til að leysa vandann er nauðsynlegt að ráðast að rótum hans og reyna að finna út hvað veldur svefnleysinu og ef hægt er að ráða bót á því. Þeir sem þjást af þreytu, dagsyfju og hrjóta mikið ættu að láta kanna hvort um kæfisvefn er að ræða. Oft á tíðum er ástæðan einfaldlega óreglulegar svefnvenjur eða að fólk fer einfaldlega of seint að sofa.

Algengast er að svefnþörf fullorðinna sé 7-8 klst. á sólarhring. Langir daglúrar draga úr góðum nætursvefni.  

Einkenni

Helstu einkenni svefntruflana eru:

  • Lengri tíma tekur að sofna
  • Algengara er að vakna á nóttunni
  • Erfiðara er að sofa fram eftir
  • Þreyta og dagsyfja

Svefnlyf

Notkun svefnlyfja er ekki langtímalausn þar sem virknin minnkar með tímanum. Svefnlyfjanotkun er algengust hjá eldri borgurum sem eru í meiri hættu á aukaverkunum. Notkun svefnlyfja getur haft neikvæðar afleiðingar eins og verri einbeiting og auknar líkur á byltum. Frekari vitneskja um öruggar langtíma lausnir við svefnvanda má finna á Sofðu vel.

Hvað get ég gert?

  • Oft er hægt að ráða bót á svefntruflunum með einföldum ráðum sem hver og einn getur sjálfur gert.
  • Hugræn atferlismeðferð er árangursrík lausn við langvarandi svefnleysi. Allt að 90% þeirra sem sækja þessa meðferð ná að bæta svefn sinn verulega og árangurinn helst til lengri tíma. Á svefnnámskeiði Heilsubrúar Heilsugæslunnar er boðið upp á Hugræna atferlismeðferð við svefnleysi.
  • Hægt er að fá meðferð við svefnleysi á netinu á Íslandi. Helstu kostir vefmeðferðar eru að hún er ódýrari, gagnast öllum óháð búsetu og fólk getur stundað meðferðina hvar og hvenær sem er.
  • Ef svefntruflanir eru viðvarandi er rétt að hafa samband við heilsugæsluna þína og leita ráða hjá lækni þar.

Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.

Smelltu hér til að meta heilsuhegðun þína