Lyf eru notuð í fjölbreyttum tilgangi. Til að hámarksárangur náist þarf að nota lyfin rétt.
Öllum lyfjum fylgir fylgiseðill sem gott er að kynna sér. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar sem geta skipt notanda lyfsins máli. Hægt er að nálgast hann á heimasíðu Lyfjastofnunar.
Í hverjum fylgiseðli má finna upplýsingar um:
- Lyfið og við hverju það er notað.
- Hvenær má ekki taka lyfið.
- Hvernig á að taka lyfið.
- Hugsanlegar aukaverkanir lyfsins og hvernig á að bregðast við þeim.
- Hvernig á að geyma lyfið
- Form lyfsins, t.d. töflur, mixtúra og í hvaða skömmtum það er framleitt.
Ef áhyggjur eru af lyfjatökunni má fá aðstoð hjá lyfjafræðingi í apóteki eða á netspjallinu á heilsuvera.is
Á lyfjaumbúðum eru leiðbeiningar frá lækninum um hvernig og hversu oft á að taka lyfið. Til að meðferðin skili árangri er þarf að fylgja fyrirmælum og vera í sátt við sína lyfjagjöf.
Lyfið er aðeins ætlað þeim sem það er ávísað á.
Hækkandi aldur og lyf
Með hækkandi aldri (70+)verða breytingar sem geta haft áhrif á lyfjanotkun. Til dæmis hægara niðurbrot lyfja og hægari útskilnaður um nýru. Þessar breytingar geta valdið því að lyf eru lengur að skiljast út úr líkamanum með þeim afleiðingum að líkur á aukaverkunum aukast.
Það getur þurft að endurskoða skammtastærðir með hækkandi aldri eða ef breyting verður á annarri lyfjatöku og/eða heilsufari.
Eldra fólk þarf oft minni skammta en yngra fólk af sama lyfi.
Hægt er að fá lyfjaskömmtun úr apóteki sem einfaldar lyfjatökur.