Allir vilja upplifa vellíðan í eigin lífi. Hér fyrir neðan má finna fimm einföld ráð til þess, sem byggja á rannsóknum um þá þætti sem skipta mestu máli fyrir hamingju og lífsánægju:
Mynda tengsl við fólkið í kringum þig, fjölskyldu þína, vini, samstarfsfólk og nágranna. Rækta tengslin heima hjá þér, í vinnunni, í skólanum og í nánasta umhverfi þínu. Líttu á þessi tengsl sem hornsteina lífs þíns og gefðu þér tíma til að hlúa að þeim. Að byggja upp þessi tengsl styrkir þig og auðgar líf þitt á hverjum degi.
Leiðir til að efla tengslin eru fjölmargar og í raun bara hugmyndaflugið sem heftir fólk í því. Tilvalið er að gera eitthvað saman og skapa með því góðar minningar. Það eflir líka tengslin að hjálpast að við þau verkefni sem fyrir liggja.
Fara út að ganga eða í sund. Njóta útivistar. Hjóla. Fara í leiki. Rækta garðinn. Dansa. Hreyfing gefur vellíðan. Það er mikilvægasta er að finna hreyfinu sem þú hefur gaman af og hentar líkamlegu ástandi þínu og getu.
Það eykur líkurnar á að það takist ef þú færð vin eða fjölskyldumeðlim til að vera með þér í hreyfingunni. Flestum finnst bæði skemmtilegra og auðveldara að hreyfa sig með öðrum. Það eflir líka tengslin og þannig má segja að tvær flugur séu slegnar í sama högginu.
Halda í forvitnina. Taka eftir hinu óvenjulega. Veita árstíðabreytingum athygli. Njóta augnabliksins, hvort sem þú ert úti að ganga, að borða hádegismat eða tala við vini þína.
Vera vakandi fyrir veröldinni í kringum þig og hvernig þér líður. Að leiða hugann að því sem þú upplifir hjálpar þér að meta það sem skiptir þig máli.
Prófa eitthvað nýtt. Rifja upp gamalt áhugamál. Skrá þig á námskeið. Taka að þér ný verkefni. Lær að spila á hljóðfæri eða elda uppáhaldsmatinn þinn.
Seta þér markmið sem þú munt hafa gaman af að ná. Það er skemmtilegt að læra nýja hluti og eykur sjálfstraustið.
Gera eitthvað fallegt fyrir vin þinn eða ókunnuga manneskju. Sýna þakklæti. Brosa. Gefa af tíma þínum. Taka þátt í félags- eða sjálfboðastarfi.
Fjölmörg góðgerðafélög eru rekin af sjálfboðaliðum og innan íþróttafélaganna er alltaf þörf fyrir vel meinandi sjálfboðaliða. Hikaðu ekki við að taka að þér verkefni fyrir félagsskap sem þú tengist eða hefur áhuga á.
Horfa út á við og líka inn á við. Að líta á sig og hamingju sína sem hluta af stærra samhengi getur verið einstaklega gefandi og eflir tengslin við fólkið í kringum þig.
Hvernig urðu leiðirnar fimm til?
Árið 2008 fól vinnuhópur á vegum bresku ríkisstjórnarinnar, Foresight‘s Mental Capital and Wellbeing Project, samtökunum New Economic Foundation að fara yfir rannsóknir á áhrifaþáttum vellíðanar og finna gagnreyndar aðferðir til að auka vellíðan og lífshamingju.
Samtökin fóru yfir rannsóknir ríflega 400 rannsakenda víða um heim og tóku saman þær aðferðir sem höfðu sterkastan rannsóknargrunn að baki. Fimm leiðir að vellíðan, eða „Five Ways to Wellbeing“, eru afrakstur þeirrar vinnu. Rannsóknir sýna að jafnvel lítilsháttar aukning á vellíðan getur átt þátt í að draga úr sumum geðrænum vandamálum og hjálpað fólki að blómstra í lífinu.
Nánar má lesa um verkefnið og uppruna þess hér.
Veggspjald til útprentunar.
Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.