Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Slysavarnir 6-11 mánaða

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Á þessum aldri getur barnið sjálft valdið slysi ef þess er ekki vel gætt. Því er mikilvægt að foreldrar fylgist ávallt vel með barninu og tryggi að umhverfi þess sé öruggt. Gott er að nota gátlistann til að bæta úr slysavörnum á heimilinu.

Fall

Slys af völdum falls eykst til muna á þessum aldri.

  • Gott er að venja barnið við að nota beisli í matarstól strax frá fyrsta degi. Til þess að koma í veg fyrir að stóllinn sporðreisist er hann festur við borðið. Matarstólar sem framleiddir voru fyrir árið 2013 geta verið mjög valtir og því ekki öruggir í notkun.
  • Ef barni er lyft upp á húsgagn og það skilið þar eftir eitt er hætta á falli.
  • Hliðar rúms ættu að vera í hæstu stillingu og rúmbotn í þeirri lægstu. Barnið gæti farið að klifra úr rúminu.
  • Ekki er mælt með notkun göngugrinda. Barn í göngugrind er í meiri hættu að slasa sig þar sem þau geta náð í hluti sem þau annars myndu ekki ná í.
  • Ekki er mælt með notkun hoppuróla. Börn hafa slasast við að detta úr þeim.
  • Öryggishlið ættu að vera lokuð bæði við efra og neðra stigaop.
  • Ekki er ráðlagt að hafa barnarúm við glugga.
  • Upplagt er að setja öryggislæsingar á alla glugga.
  • Bil milli rimla í rúmi, í stiga og svalahandriðum má ekki vera meira en 9 cm.
Bruni
  • Best er að barnið sé á öruggum stað á meðan verið er að elda svo það komist ekki að hitagjöfum.
  • Gott er að venja sig á að drekka aldrei heita drykki með barn í fanginu.
  • Logandi kerti, kveikjarar og eldspýtur ættu að vera þar sem börn ná ekki til.
  • Lampar og lampasnúrur ættu að vera þannig að barn nái ekki til þeirra. Einnig ættu fjöltengi að uppfylla nýjar kröfur um innbyggða öryggislæsingu.
  • Ekki ætti að nota straujárn á meðan barnið er nálægt. Straujárnið ætti að kólna þar sem barnið nær ekki til.
  • Snúrur raftækja ættu ekki að hanga niður af borðum en hægt er að stytta þær með snúrustytti.
  • Miðstöðvarofnar geta hitnað hættulega mikið og gæta þarf þess að barn snerti ekki heita ofna.
  • Best er að nota aftari hellur á eldavél eða snúa handföngum og sköftum að vegg eða nota öryggishlíf á eldavélina.
  • Bakaraofnar geta hitnað mikið að utan. Því er gott að setja öryggishlíf og tryggja að barnið geti ekki opnað ofninn.
  • Verja þarf börn fyrir sólinni og nota sólarvörn sérstaklega ætlaða ungum börnum. Einnig gæta þess að börn séu ekki útsett fyrir mikilli sól nema örstutta stund í einu.
Köfnun
  • Notið viðurkenndar sængur eða værðarpoka og engan kodda fyrsta árið.
  • Verið hjá barninu á meðan það er að borða eða drekka og venjið það á að sitja kyrrt á meðan það borðar eða drekkur.
  • Fjarlægið smáhluti sem eru hættulegir fyrir barnið.
  • Fylgist með eldri börnum og kennið þeim að setja ekkert í munn ung- og smábarna og láta þau ekki hafa smáhluti eða leikföng sem innihalda smáhluti.
  • Blöðrur henta ekki börnum á þessum aldri. Geymið plastumbúðir og poka þar sem börn ná ekki til.
  • Verið viss um að föt og skartgripir þrengi ekki á hálsi barnsins. Fjarlægið reimar úr fatnaði.
  • Notið ekki hárbönd fyrir börn yngri en 1 árs
  • Styttið gardínusnúrur eða hengið upp svo börn nái ekki til.
  • Setjið ekki barnarúm eða rúm við glugga þar sem gardínusnúrur hanga lausar. Gott er að festa snúrur við gluggakarm með þar til gerðri öryggisfestingu.
Drukknun
  • Barn á þessum aldri getur drukknað í 2-5 cm djúpu vatni.
  • Látið barn aldrei leika sér eitt nálægt pollum eða vatni.
  • Víkið aldrei frá barni í baði, ekki eitt augnablik.
  • Baðsæti eru ekki öryggisbúnaður. Aldrei skilja barn eftir í slíku sæti eitt augnablik.
  • Tæmið alltaf vaðlaugar og fötur eftir notkun.
  • Setjið alltaf öryggislok yfir heitan pott strax eftir notkun.
  • Börn undir 12 ára aldri hafa ekki þroska til að bera þá ábyrgð að gæta kornabarns í baði.
Útivera
  • Fylgist reglulega með barninu meðan á útisvefni stendur. Hafið barnið alltaf í beisli í vagninum. Ekki er mælt með því að börn sofi úti í frosti eða roki.
  • Notið hlífðarnet fyrir vagninn til að hindra að kettir og skordýr komist að barninu.
  • Skiljið barn aldrei eftir eitt úti í garði eða á svölum og látið barn aldrei leika sér eitt í sandkassa en þau geta kafnað í sandi.
  • Setjið aldrei barn í vöruhluta innkaupakerru.
  • Ekki má reiða barn á hjóli fyrr en það hefur náð 9 mánaða aldri. Aðrar reglur gilda um aftanívagna fyrir reiðhjól en þá þarf að fylgja leiðbeiningum um rétta notkun. Klæðið barnið vel og notið CE vottaðan ungbarnahjálm.
Barnabílstóll
  • Barn yngra en eins árs má ekki snúa í akstursstefnu.
  • Best er fyrir barn að snúa baki í akstursstefnu til 3 ára aldurs.
  • Kannið ávallt áður en stóllinn er keyptur að hann passi í þá bíla sem á að nota hann í.
  • Lengd barnsins segir til um hvenær útvega þarf nýjan stól, ekki þyngd né aldur. Því þarf barnið að nota ungbarnabílstólinn þangað til það hefur náð uppgefinni lengd í leiðbeiningum framleiðanda.

Myndin sýnir barn í barnabílstól

Barn í matarstól
Öryggi á heimili
Öryggi í baði

Upplýsingar um félagsleg réttindi foreldra/forráðamanna barna við slys eða skammvinn veikindi má finna hér.