Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Slysavarnir 3-5 ára

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Börn á aldrinum 3-5 ára eiga alltaf að vera undir eftirliti þegar þau eru úti og leika sér á öruggum stöðum.

Fall
  • Ekki er öruggt fyrir börn yngri en 6 ára að sofa í kojum.
  • Best er að ræða um hætturnar sem fylgja því að leika sér við glugga við barnið.
  • Á þessum aldri getur barn klifrað mjög hátt. Jafnvægi þess er ekki fullþroskað og því hætta á falli mikil. Brýna ætti fyrir barni hætturnar sem geta orðið ef það fellur niður.
  • Ganga ætti úr skugga um að leiktæki henti aldri og þroska barnsins og fylgja reglum um notkun þeirra. Sýna ætti barni hvernig á að nota leiktæki rétt en gera ráð fyrir að það noti þau á annan hátt.
  • Stiginn á ekki að vera leiksvæði og ekki ætti að leyfa leiki í kojum.
Skurðir og mar
  • Geyma ætti hættulega hluti, þunga og beitta, þar sem barnið nær ekki til.
  • Gott er að kenna barninu að nota smjörhnífa og þar til gerð barnaskæri.
  • Ráðlagt er að setja fingravini á hurðir til að koma í veg fyrir klemmuslys.
Bruni
  • Barn á þessum aldri er enn í mikilli hættu að brenna sig. Það er því mikilvægt að gæta vel að því að barn sé ekki að fikta í rafmagnstækjum, eldspýtum eða öðrum hitagjöfum.
  • Gott er að kenna barninu örugga umgengni með rafmagnstæki.
  • Logandi kerti, kveikjarar og eldspýtur ættu að vera þar sem barn nær ekki til.
Drukknun
  • Á þessum aldri telja börn sig vera orðin mjög örugg í sundi. Leyfið aldrei ósyndu barni að vera einu í lauginni þrátt fyrir að það sé með armkúta eða annan slíkan búnað.
  • Börn á þessum aldri ættu aldrei að vera ein að leik við ár, vötn, sjó eða aðra staði þar sem vatn er.
Köfnun
  • Á þessum aldri er barn mjög upptekið af snúrum og böndum og öðru sem það getur tekið upp á að setja um hálsinn á sér. Slíkt er lífshættulegur leikur.
  • Leikur með sippubönd ætti alltaf að vera undir eftirliti fullorðinna.
Eitranir

Barn á þessum aldri er í minni hættu á að verða fyrir eitrun en þau yngri. Brýna ætti fyrir barninu hætturnar sem fylgja hættulegum efnum. Lyf ættu alltaf að vera geymd í læstum skápum og hættuleg hreinsiefni ættu að vera geymd þar sem börn ná ekki til. Nánar um geymslu og förgun lyfja hér.

Númer Neyðarlínunnar 112 ætti að vera við öll símtæki á heimilinu.

Ef barnið verður fyrir eitrun hringið strax í 112 eða í Eitrunarmiðstöð LSH: 543-2222

Útivera
  • Börn á þessum aldri eiga ekki að vera ein úti án eftirlits en gæta þarf þess að leikumhverfi þeirra sé öruggt.
  • Best er að leiða barnið við umferðargötur.
  • Gott er að kenna barninu umferðarreglurnar á meðan þið eruð á gangi.
Reiðhjól og fleira
  • Best er að velja hjól sem hentar aldri, stærð og þroska barnsins.
  • Óæskilegt er að börn yngri en 5 ára séu á tvíhjóli þó þau noti hjálpardekk. Tvíhjól með hjálpardekkjum geta náð mikilli ferð sem börnin ráða ekki við.
  • Ef börnum yngri en 5 ára er leyft að vera á tvíhjóli með hjálpardekkjum eða sparkhjólum verða fullorðnir að fylgjast með þeim.
  • Öll börn eiga að nota hjálm þegar þau eru að hjóla, líka þegar þau eru á þríhjólum. Gæta þarf þess að hann sitji rétt á höfði barnsins og sé stilltur samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda. 
  • Velja ætti reiðhjól með fótbremsum fyrir börnin. Þannig geta þau stjórnað betur hraða hjólsins.
  • Börn ættu ekki að hjóla á eða við götur en kenna þarf börnum að teyma hjól yfir götur.
  • Ekki er öruggt fyrir barnið að leika sér í leiktækjum með reiðhjólahjálm á höfðinu.

Línuskautar
Nota þarf hjálm og hlífar á úlnliðum, olnbogum og hnjám.

Hlaupahjól
Gætið þess að hæð handfangs hlaupahjólsins sé hæfileg miðað við stærð barnsins. Nota þarf hjálm og hlífar á úlnliðum, olnbogum og hnjám.

Sleðar og þotur
Gæta þarf þess að börn séu að renna sér á öruggum svæðum fjarri umferð. Best er að velja sleða sem hentar aldri, stærð og þroska barnsins. Ung börn ráða ekki við stýrissleða.

Trampólín
Fylgja þarf leiðbeiningum framleiðandans um aldursmörk. Ekki ætti að leyfa litlum börnum að hoppa með eldri börnum né fleirum en einum að vera á trampólíninu í einu. Einnig þarf að nota öryggisnet.

Öryggisbúnaður í bíl
  • Barn á þessum aldri á enn að vera í barnabílstól eða að nota sessu með baki.
  • Ekki er ráðlagt að taka bakið af sessunni en sessa án baks veitir barni litla sem enga vörn.
  • Barn verður að vera orðið 150 sm á hæð til að geta setið í framsæti bíls ef í honum er virkur öryggispúði.

Upplýsingar um félagsleg réttindi foreldra/forráðamanna barna við slys eða skammvinn veikindi má finna hér.