Ofkæling (e. hypothermia) á sér stað þegar líkamshiti fer niður fyrir 35°C en eðlilegur líkamshiti er um 37°C. Ofkæling er hættulegt ástand sem getur valdið hættulegum einkennum og dregið fólk til dauða en því þarf að leita læknishjálpar sem fyrst.
Einkenni
- Skjálfti
- Föl, köld og/eða þurr húð
- Bláar varir eða húð
- Óskýrt tal
- Hæg öndun
- Þreyta eða skert meðvitund
Einnig geta börn verið:
- Köld viðkomu og húðin rauð
- Lin
- Óvenju þögul, þreytt og neita að borða
Orsakir
- Klæða sig ekki nógu vel í köldu veðri
- Of löng útivera í kulda
- Detta út í kalt vatn
- Vera í köldum, blautum fötum
Hvað get ég gert?
Á meðan beðið er eftir aðstoð:
- Fara sem fyrst innandyra eða í skjól
- Fjarlægja blautar flíkur og vefja inn í teppi, svefnpoka eða handklæði. Passa að höfuðið sé líka hulið
- Drekka heita óáfengadrykki og fá sér sykur, til dæmis ávaxtasafa eða súkkulaði
- Fylgjast með og halda vakandi, til dæmis með því að tala saman
- Forðast of mikla hitabreytingu eins og að fara í heitt bað, nota hitapoka eða hitalampa
- Sleppa því að nudda útlimi og drekka áfengi