Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Réttindi við veikindi

Kaflar
Útgáfudagur

Við skyndileg veikindi getur einstaklingur þurft að kynna sér réttindi til framfærslu, sérstaklega ef veikindi dragast á langinn. Munur getur verið á réttindum eftir því að hvort einstaklingur sé á almennum vinnumarkaði, í námi, sjálfstæður atvinnurekandi eða utan vinnumarkaðar.

Ferli framfærsluréttinda í veikindum á vinnumarkaði

Mikilvægt er að segja ekki upp vinnu í veikindum

1.Veikindaréttur hjá vinnuveitanda: Byrja á að klára að veikindarétt hjá vinnuveitanda. Kanna réttarstöðu hjá launafulltrúa eða mannauðsstjóra.

  • Gögn sem þarf að skila: Atvinnurekandavottorð frá lækni.

2.Veikindaréttur hjá stéttarfélagi og Sjúkratryggingum Íslands: Þegar veikindarétti lýkur hjá vinnuveitanda er næsta skref að leita til stéttarfélags og sækja um sjúkradagpeninga. Mismunandi réttur er eftir stéttarfélögum – kanna þarf sinn rétt hjá sínu stéttarfélagi. Samtímis er einnig hægt að sækja um sjúkradagpeninga hjá Sjúkratryggingum Íslands – www.sjukra.is

  • Mögulegt getur verið fyrir maka sjúklings að sækja um greiðslur frá sínum sjúkrasjóði ef maki er frá vinnu vegna alvarlegra veikinda.
  • Vottorð: Læknisvottorð þar sem staðfest eru veikindi sjúklings
  • Gögn sem þarf að skila: Sjúkradagpeningavottorð. Það þarf að gæta þess að setja dagsetningu fram í tímann ef hægt er, annars gildir vottorðið bara í mánuð.

3. Endurhæfingarlífeyrir/Örorka:

Skiptist í réttindi hjá annars vegar Tryggingastofnun ríkisins (TR) og hins vegar hjá Almennum lífeyrissjóðum (Örorkulífeyrir, séreignarlífeyrissparnaður, sjúkdómatryggingar). Kanna rétt sinn hjá TR og sínum lífeyrissjóðum/tryggingafélögum – www.tr.is, lífeyrissjóðir og tryggingafélög.

Hægt er að fá endurhæfingarlífeyri í allt að 5 ár en byrjað er á 12-18 mánuðum og síðan endurmetið hvort þörf er á áframhaldandi endurhæfingu eða endurhæfing sé raunhæf.

Yfirleitt þarf endurhæfing að vera fullreynd áður en hægt er að sækja um örorkulífeyri.

Ferli framfærsluréttinda í veikindum utan vinnumarkaðar

1. Veikindaréttur hjá stéttarfélagi og Sjúkratryggingum Íslands: Ef greitt hefur verið í stéttarfélag af atvinnuleysisbótum getur viðkomandi átt rétt til sjúkradagpeninga hjá sínu stéttarfélagi. Mismunandi réttur er eftir stéttarfélögum – kanna þarf sinn rétt hjá sínu stéttarfélagi. Samtímis er hægt að sækja um sjúkradagpeninga hjá Sjúkratryggingum Íslands – www.sjukra.is

  • Mögulegt getur verið fyrir maka sjúklings að sækja um greiðslur frá sínum sjúkrasjóði ef makinn er frá vinnu vegna veikindanna.
  • Gögn sem þarf að skila: Sjúkradagpeningavottorð frá lækni. Það þarf að gæta þess að setja dagsetningu fram í tímann ef hægt er, annars gildir vottorðið bara í mánuð. 

2. Örorku/endurhæfingarlífeyrir: Skiptist í réttindi hjá annars vegar Tryggingastofnun ríkisins (TR) og hins vegar hjá Almennum lífeyrissjóðum (Örorkulífeyrir, séreignarlífeyrissparnaður, sjúkdómatryggingar). Kanna rétt sinn hjá TR og sínum lífeyrissjóðum/tryggingafélögum – www.tr.is, lífeyrissjóðir og tryggingafélög.

Hægt er að fá endurhæfingarlífeyri í allt að 5 ár en byrjað er á 12-18 mánuðum og síðan endurmetið hvort þörf er á áframhaldandi endurhæfingu eða endurhæfing sé raunhæf. 
Yfirleitt þarf endurhæfing að vera fullreynd áður en hægt er að sækja um örorkulífeyri.

3: Félagsþjónusta sveitafélaga: Þegar réttindi eru fullnýtt eða ekki til staðar. Kanna rétt á fjárhagsaðstoð og  þjónustu í heimahúsi sem gæti komið að gagni, eins og til dæmis aðstoð við þrif, innkaup og fleira. Fá viðtal hjá félagsráðgjafa á þjónustumiðstöð í sínu hverfi/bæ.

Athugið að sækja þarf um flest þau félagslegu réttindi sem nefnd hafa verið hér að framan