Veikindi á meðgöngu á vinnumarkaði
Veikindaréttur starfsmanns hjá atvinnurekanda
Gott er að kanna sinn rétt hjá sínum atvinnurekanda. Mikilvægt er að viðhalda ráðningasambandi eins og hægt er.
Sjúkradagpeningar
Frá stéttarfélagi og Sjúkratryggingum Íslands.
Þegar veikindarétti lýkur hjá vinnuveitanda er næsta skref að leita til stéttarfélags og sækja um sjúkradagpeninga. Mismunandi réttur er eftir stéttarfélögum og því er gott að kanna sinn rétt hjá stéttarfélagi. Einnig er samtímis hægt að sækja um sjúkradagpeninga hjá Sjúkratryggingum Íslands.
Fylgigögn sem þurfa að berast: Læknisvottorð sem staðfestir veikindi sjúklings
Aukið fæðingarorlof
Ef heilsufarsástæður á meðgöngu valda því að leggja þarf niður launuð störf eða hætta þátttöku á vinnumarkaði meira en mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag getur viðkomandi átt rétt á lengra fæðingarorlofi samkvæmt rétti til atvinnuleysisbóta en þó aldrei lengur en 2 mánuði.
Með heilsufarsástæðum er átt við:
- Sjúkdóma sem koma upp vegna meðgöngu og valda óvinnufærni
- Sjúkdóma, tímabundna eða langvarandi, sem versna á meðgöngu og valda óvinnufærni
- Fyrirbyggjandi meðferð til að koma í veg fyrir fæðingu fyrirbura eða til að vernda heilsu fósturs, enda valdi meðferðin óvinnufærni.
Fylgigögn sem þurfa að berast:
- Læknisvottorð vegna veikinda móður
- Starfslokavottorð vegna veikinda móður á meðgöngu.
Veikindi á meðgöngu - námsmaður í 75% námi eða meira
Námsmenn geta ekki fengið aukinn fæðingarstyrk vegna veikinda á meðgöngu
Allt að þremur mánuðum fyrir fæðingu getur námsmaður átt rétt á auknu svigrúmi. Ef ekki nást lágmarks einingar og námsmaður uppfyllir ekki kröfur sjóðsins um lágmarks námsframvindu til að fá námslán vegna veikinda á meðgöngu. Frekari upplýsingar hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Fylgigögn sem þurfa að berast: Framvísa þarf læknisvottorði/fæðingarvottorði.
Námsmaður getur sótt um þessa undanþágu fram að 12 mánaða aldri barns. Námsmaður þarf að fara með forsjá og barnið þarf að eiga lögheimili eða búa hjá námsmanni á námstíma.
Veikindi á meðgöngu á endurhæfingarlífeyri eða örorkulífeyri
Ekki er hægt að fá aukinn fæðingarstyrk vegna veikinda á meðgöngu.
Fjölburafæðing
Foreldrar eiga sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs/fæðingarstyrks um þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist eftir 22 vikna meðgöngu, lifandi eða andvana.
Veikindi móður í tengslum við fæðingu
Komi upp alvarleg veikindi hjá móður sem rekja má til fæðingarinnar svo hún geti ekki annast barn sitt þann tíma sem fæðingarorlof/fæðingarstyrkur var greiddur að mati sérfræðilæknis, er heimilt að framlengja fæðingarstyrk hennar um allt að 2 mánuði.
Fylgigögn sem þurfa að berast: Læknisvottorð vegna veikinda sem tengjast fæðingu.
Sjúkrasjóður stéttarfélags maka: Mælt er með að kynna sér réttindi hjá stéttarfélagi maka. Mismunandi réttindi eru hjá stéttarfélögum en sum stéttarfélög greiða sjúkradagpeninga fyrir félagsmann vegna veikinda maka. Mikilvægt er að kynna sér umsóknarferli, dagsetningar og fylgigögn. Maki óskar eftir læknisvottorði hjá lækni móður.
Sjúkrahúsdvöl nýbura í beinu framhaldi af fæðingu
Fæðingarorlof/fæðingarstyrkur
Foreldrar geta átt rétt á sameiginlegri lengingu á orlofi ef innlögn barns á vökudeild varir lengur en sjö daga og/eða ef um er að ræða alvarlegan sjúkdóm eða alvarlega fötlun barns sem krefst aukinnar umönnunar foreldris. Ef um fjölburafæðingu er að ræða gildir dvalartími þess barns sem lengur/lengst dvelur.
Að sækja um framlengingu á fæðingarorlofi vegna veikinda barns:
1. Óska eftir læknisvottorði við útskrift barns eða þegar sértækri umönnun barns lýkur og senda á Fæðingarorlofssjóð.
2. Foreldrar tilkynna vinnuveitanda og Fæðingarorlofssjóði hvernig þau ætla að ráðstafa lengingunni með því að fylla út eyðublaðið ,,Tilkynning um tilhögun fæðingarorlofs" á síðu fæðingarorlofssjóðs.
Sjúkrasjóður stéttarfélaga
Sjúkradagpeningar vegna veikinda barns eru mismunandi eftir stéttarfélögum. Umsóknarferli, dagsetningar og fylgigögn eru mismunandi eftir stéttarfélögum. Foreldrar óska eftir læknisvottorði á nafni barns en nöfn foreldra koma fram.
Fæðingarstyrkur stéttarfélaga
Sum stéttarfélög eru með fæðingarstyrki eða eingreiðslu vegna fæðingar barns. Gott er að kanna sinn rétt hjá viðkomandi stéttarfélagi.
Foreldrar með búsetu úti á landi
Ferðakostnaður vegna búsetu utan höfuðborgarsvæðisins
Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði vegna ítrekaðra ferða ef um er að ræða alvarleg vandamál í meðgöngu.
Að sækja um ferðakostnað:
1. Óska eftir ferðavottorði hjá lækni.
2. Fá staðfestingu á ferðum til læknis eða ljósmóður frá ritara eða ljósmóður.
3. Foreldrar þurfa að skila inn staðfestingu á þessum ferðum ásamt kvittunum fyrir fargjaldi til umboðs sjúkratrygginga Íslands hjá sýslumanni í sínu umdæmi
Gistikostnaður vegna búsetu utan höfuðborgarsvæðisins
Varðandi gistingu á höfuðborgarsvæðinu er yfirleitt fyrst athugað með gistingu á Sjúkrahóteli Landspítala. Læknir, hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir sendir beiðni fyrir dvöl þar.
Barnaspítalinn á nokkrar íbúðir sem foreldrar geta leigt á meðan barnið dvelur á spítalanum. Hægt er að sækja um íbúð með því að senda tölvupóst á: mottakabh@landspitali.is Eftirfarandi þarf að koma fram í tölvupóstinum: Nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer, nafn barns, kennitala barns, fjöldi fullorðna, fjöldi barna, tímabil og hvort þörf sé fyrir lyftuhúsnæði.
Ef sjúkrahótelið eða íbúð Barnaspítala Hringsins eru ekki tiltæk, geta foreldrar athugað hvort stéttarfélagið sitt eigi íbúð á höfuðborgarsvæðinu sem hægt væri að fá leigða.
Dvalarstyrkur
Réttur til dvalarstyrks er bundinn við að verðandi móðir eigi rétt á fæðingarorlofi eða fæðingarstyrk. Heimilt er að greiða dvalarkostnað móður fjarri heimili 14 dögum fyrir áætlaðan fæðingardag og fram að fæðingu. Ef um fjölburameðgöngu er að ræða er heimilt að byrja að greiða dvalarkostnað 28 dögum fyrir áætlaðan fæðingardag og fram að fæðingu.
Ekki er greiddur dvalarstyrkur þann tíma sem verðandi móðir dvelur á sjúkrahúsi eða heilbrigðisstofnun.
Fylgigögn sem þurfa að berast: Læknisvottorð.