Þegar tóbaksnotkun er hætt getur líkaminn mótmælt því harðlega að fá ekki nikótínið sitt. Mörg sem hætta, hvort sem er reykingum eða annarri tóbaksnotkun, fá slæm fráhvarfseinkenni. Þessi einkenni eru verst fyrstu 2-3 dagana eftir að tóbaksnotkun er hætt. Eftir 2 til 4 vikur eru óþægindin nánast alltaf alveg horfin.
Algeng fráhvarfseinkenni eru:
- Pirringur og ofstopi
- Depurð
- Kvíði
- Eirðarleysi og órói
- Einbeitingarleysi
- Svitaköst
- Svefnleysi og svefntruflanir
Einnig er þekkt að fólk fái handskjálfta þegar tóbaksnotkun er hætt en það er ekki eins algengt og það sem að ofan greinir. Hér eru nokkrir gagnlegir punktar ef þú telur vin þinn vera í vanda en þau sjá ekki þörf á aðstoð
Hægt er að fá meðferð og stuðning við að hætta tóbaksnotkun á netspjalli hér á síðunni og í síma 5131700.
Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.